Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir eru lítið og fallegt svæði á Vestfjörðum.
Hver gripur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Lengd keðju: 42 cm með framlengingu í 45 cm
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum gamaldags yfirbragð með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 14K gult gull og 14k gullkeðja eða oxuð silfurkeðja