Körfan mín

Loka

Skeljahálsmen - Hringskeljar - Gull

85,000 ISK

Seashell-línan er innblásin af skeljum sem finnast í íslenskri náttúru. Fríða á góðar æskuminningar þar sem fjölskylda hennar iðkaði þá þjóðarhefð að safna skeljum og nota þær til að skreyta litla kassa, spegla og ramma. Þessir skreyttu hlutir, og nú þessi lína, minna okkur á að virða náttúruna sem umlykur okkur og mikilvægi þess að varðveita fegurð hennar.

Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á skartgripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxeraða gripi: Vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun máast af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripnum gamaldags yfirbragð með tímanum. Það er alltaf hægt að fá gripinn oxeraðan aftur.

EFNI: 14K gult gull og 14k gullhúðað silfur eða oxerað silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridskart.is ef þú vilt fá verðupplýsingar fyrir keðju úr gegnheilu 14k gulu gulli.