The Traveler er safn sem er innblásið af gömlum kvensöðli frá 17. öld. Mynstrið er myndað úr grönnum jurtarteinum sem mótaðir eru í hringlaga form sem skarast og fléttast saman.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið allt frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir verkefninu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta fyrir tiltekna dagsetningu, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Lengd keðju: 42 cm með framlengingu í 45 cm
EFNI: 14kt gull