Seashell-línan sækir innblástur í skeljar sem finnast í íslenskri náttúru. Fríða á góðar bernskuminningar þar sem fjölskyldan stundaði þá þjóðlegu iðju að safna skeljum og nota þær til að skreyta litla kassa, spegla og ramma. Þessir skreyttu hlutir, og nú þessi lína, þjóna sem áminning um að heiðra náttúruna sem umlykur okkur og mikilvægi þess að varðveita fegurð hennar.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Lengd keðju: 42 cm með framlengingu í 45 cm
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum gamaldags yfirbragð með tímanum. Ávallt er hægt að láta oxa gripinn á ný.
EFNI: 14K gult gull & 14k gull eða oxuð silfurkeðja