Körfan mín

Loka

Prjónaeyrnalokkar - 6 mm kringlóttir náttúrusteinar - hangandi - gull

89,000 ISK
Prjónalínan
Ullin hefur yljað Íslendingum í aldaraðir og prjónið er eitt af okkar dýrmætustu handverkum. Í Prjónalínunni fangar Fríða mjúka áferð og hlýju prjónsins og færir hana yfir í silfur og 14 karata gull.
Hver gripur er unninn af nákvæmni svo lykkjurnar raðast upp eins og í prjónaðri flík. Í armböndunum má sjá munstur með þremur, fjórum og allt upp í sjö umferðum, rétt eins og í peysunni sem amma prjónaði.
Mjúkt verður hart, hlýtt verður skínandi. Prjónalínan heiðrar íslenska alþýðulist og hefðir á nútímalegan hátt, með skartgripum sem eru þægilegir í daglegri notkun en bera með sér sterka tengingu við íslenska menningu.

EFNI: 14k  gull & 6mm náttúrusteinar