Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju í Strandasýslu. Strandir er lítið og fallegt svæði á Vestfjörðum.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið allt frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur fer eftir flækjustigi verksins og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekna dagsetningu, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun máast af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum gamaldags yfirbragð með tímanum. Það er alltaf hægt að fá gripina oxaða aftur.
EFNI: 14K gult gull og 14k gullhúðuð eða oxuð silfurkeðja. *Vinsamlegast hafðu samband við okkur á fridaskart@fridaskart.is ef þú vilt fá verðupplýsingar fyrir gegnheila 14k gullkeðju.