Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Kamburinn, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýn af íslenskum konum fyrri tíða nota kambana sína til að eiga stund með sjálfum sér og kannski týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa muni nútímaskartgripum.
Hver gripur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Lengd keðju: 42 cm með framlengingu að 45 cm
Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að fá gripinn oxaðan á ný.
EFNI: 14K gult gull & 14k gull eða oxuð silfurkeðja