Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Kamburinn, en hann var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum til forna sem notuðu kamba sína til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á gripnum þínum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14K gult gull og 8x4 mm sítrín