Körfan mín

Loka

Hálsmen Celts & Kings - 3 kambar - 4 steinar - Gull

146,000 ISK

 

Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, en hún var gripur sem veitti Fríðu innblástur með sýnum af íslenskum konum fyrri tíma að nota greiðurnar sínar til að eiga stund fyrir sjálfar sig og kannski týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að tengja þessa gripi saman við skartgripi nútímans.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin er send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta innan ákveðins tímaramma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Lengd keðju: 42 cm með 45 cm framlengingu

Varðandi oxaða gripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og við notkun dofna af yfirborði gripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit eftir því sem tíminn líður. Það er alltaf hægt að láta oxa gripinn á ný.

EFNI: 14K gult gull & 14k gull eða oxuð silfurkeðja