Körfan mín

Loka

Prjónaðir eyrnalokkar - Miðlungs lykkja - Litlir kringlóttir pinnar - Silfur

9,500 ISK

Prjónasafnið er innblásið af því mynstri sem myndast þegar lykkjur eru prjónaðar saman. Prjónaskapur er gríðarlega rótgróinn í íslenskri menningu og vildi Fríða heiðra þetta þjóðaráhugamál.

Hver hlutur er sérsmíðaður og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á hlutnum þínum og tíminn sem það tekur fer eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxaða muni, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tímanum og notkun af yfirborði hlutarins. Þetta gefur skartgripunum gamaldags yfirbragð með tímanum. Ávallt er hægt að láta oxa hlutinn aftur.

EFNI: 925 sterling silfur