Körfan mín

Loka

Verur - Hringeyrnalokkar - Silfur

22,000 ISK

„Creatures from the past“-safniðer innblásið af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir eru lítið og fallegt svæði á Vestfjörðum.

Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið allt frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á skartgripnum þínum og tíminn sem það tekur fer eftir verkinu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.

Varðandi oxaða skartgripi, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin mun með tímanum og notkun dofna af yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripnum fornlegra yfirbragð eftir því sem tíminn líður. Alltaf er hægt að láta oxa skartgripinn aftur.

EFNI: 925 Sterling silfur