Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir er fallegt lítið svæði á Vestfjörðum.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Annars hefjum við smíði á skartgripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir verkinu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
Varðandi oxaðar vörur, vinsamlegast hafðu í huga að oxunin dofnar með tíma og notkun á yfirborði skartgripsins. Þetta gefur skartgripunum fornlegra útlit með tímanum. Það er alltaf hægt að láta oxa skartgripinn á ný.
EFNI: 925 Sterling silfur