Creatures from the past-línan er innblásin af tveimur tréskurðarmyndum frá 17. öld sem voru í Ársneskirkju á Ströndum. Strandir eru fallegur og afskekktur staður á Vestfjörðum.
Hvert verk er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, hefjum við smíði á skartgripnum og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir hlutnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14K gull með 0,07ct Top Wesselton VS1 hvítum demanti, eða 0,07 lituðum demanti