Keltar og kóngar
Keltar og kóngar vörulínan sækir innblástur í forna norræna gripi sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, norrænni tungunælu og keltneskri þríblaða nælu, sem fundust í heiðnum kumlum og eru um þúsund ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er kamburinn. Hann kveikti hjá Fríðu myndir af íslenskum konum til forna sem gáfu sér stund með kambinum, hlúðu að sjálfum sér og gleymdu sér ef til vill í eigin dagdraumum. Línan í heild leikur sér með íslenskan menningararf og sögu, þar sem þessir fornu gripir mæta skartgripum nútímans.
Fínpússa
Celts & Kings armband - 2 litlar keltneskar nælur - Gull
Frá 53,000 kr - 76,000 kr
Keltar og kóngar
42,000 kr