Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem hafa fundist á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum kumlum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er greiðan, sem er gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrr á öldum að nota greiðurnar sínar til að eiga stund fyrir sjálfar sig og, kannski, týna sér í dagdraumum sínum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa muni nútímaskartgripum.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Annars byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þig vantar pöntunina fyrir ákveðinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14K gult gull