Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum munum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænni tungunælu og Keltneskri þríarma nælu, sem fundust í gömlum heiðnum gröfum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Greiðan, gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíða þar sem þær notuðu greiðurnar sínar til að gefa sér stund fyrir sjálfar sig og hugsanlega týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.
Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn og tíminn sem það tekur er breytilegur eftir stykkinu sjálfu og fjölda pantana á verkstæðinu hverju sinni. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntun.
EFNI: 14K hvítagull & 0.09ct Top Wesselton VS1 hvítur demantur, eða 0.09 litaður demantur