Körfan mín

Loka

Celts & Kings eyrnalokkar - Pattern Circle Studs - Gull

78,000 ISK
Default Title

The Celts & Kings-línan er innblásin af gömlum gripum sem fundist hafa á Íslandi. Fríða byggði línuna á tveimur nælum, Norrænu tungunælunni & Keltnesku þríarma nælunni, sem fundust í gömlum heiðnum grafhýsum og eru um 1.000 ára gamlar. Næsta viðbót við línuna er Kamburinn, sem var gripur sem veitti Fríðu innblástur í gegnum sýnir af íslenskum konum fyrri tíma nota kambana sína til að eiga stund fyrir sjálfar sig og, kannski, týna sér í eigin dagdraumum. Öll línan leikur sér með íslenskan arf og sögu með því að sameina þessa gripi nútímaskartgripum.

Hvert stykki er sérsmíðað og því getur afgreiðslutími verið frá 2 dögum upp í 3 vikur. Ef varan er til á lager í þinni stærð sendum við pöntunina næsta virka dag. Ef ekki, byrjum við að smíða gripinn þinn & sá tími sem það tekur er breytilegur eftir gripnum sjálfum og fjölda pantana sem verkstæðið hefur hverju sinni. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar pöntunin þín hefur verið send. Ef þú þarft að fá pöntunina afhenta fyrir tiltekinn tíma, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst áður en þú gengur frá pöntuninni.

EFNI: 14K gult gull